Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.5.2007 | 21:03
Áfram til sigurs á morgun!
Lýðræði!
Tryggjum að tiltekinn hluti þjóðarinnar geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um
umdeild mál.
Eflum grasrótarsamtök og tryggjum aðkomu almennings og frjálsra félagasamtaka að
lýðræðislegri ákvarðanatöku.
Samfélag fyrir alla!
Burt með komugjöld og sjúklingaskatta.
Tryggjum almenningi lægra orkuverð og nýtum hlut ríkisins í Landsvirkjun í þágu
skynsamlegrar orkunýtingar. Afturköllum lög um einkaeign á vatni og tryggjum að
aðgangur að vatni verði áfram hluti af grunnréttindum okkar, líkt og
andrúmsloftið.
Græn framtíð!
Stöðvum frekari stóriðjuframkvæmdir og ákveðum hvaða svæði við ætlum að vernda
til framtíðar.
Stofnum loftslagsráð sem vinnur markvisst gegn losun gróðurhúsalofttegunda, m.a.
með vistvænum samgöngum og fræðslu um umhverfismál.
Kvenfrelsi!
Afnemum launaleynd strax og eflum Jafnréttisstofu.
Vinnum að því að tryggja a.m.k. 40% hlut kvenna á þingi og í sveitarstjórnum,
t.d. með því að hvetja til að fléttulistum verði beitt.
ÁFRAM TIL SIGURS Á MORGUN!
Fylgi Framsóknarflokks dalar á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2007 | 19:51
Tæknileg framtíð
Þess vegna sagði ég í Blaðinu í dag að ég vildi gjarnan sjá iPod smiðju á Íslandi sem væri bæði umhverfisvæn og fylgdi vinnuréttarlögum okkar. En það stendur hvergi að við Íslendingar þurfum alltaf að vinna fyrir erlent fyrirtæki. Ég sé framtíð þar sem umhverfisvæn og tæknileg efnahagslíf er stærri hluti af okkar efnahagslíf, þar sem við búum til vörur eins og mp3 spilari, tölvur, hugbúnaður og fleiri.
Ég tel að við eigum betra skilið en gamladags stóriðjustefna. Tæknileg framtíð er framtíð Íslands. Kjósum um það á laugardegi!
Yahoo kannar möguleika á netþjónabúi hér á landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2007 | 18:04
Já náttúrulega
Vilja banna ráðherrum að skrifa undir samninga 90 daga fyrir kosningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2007 | 14:28
Minningar
Í stutt máli, ríkistjórn sem hunsa sin eigin þjóð, láta okkar bjarga okkur sjálfum, og síðan reynir að segja okkar hvað mikið hún hefur gert. Ég segi að efnahagslíf Íslands sé gott þrátt fyrir þetta ríkistjórn - ekki út af því.
16 ára eru meira en nóg tími til að sanna sig, og þessi ríkistjórn hefur ekki gert það. Það er tími komin til að vera með ríkistjórn sem endurspegla landið allt, sem haga sér í samræmi við viljan landsins, og sem vill að gera meira en það sem hefur nú þegar gert annarstaðar í Skandinavíu.
Ég vil að sjá Ísland sem fyrirmyndaland fyrir heimurinn allt. VG er að bjóða landið tækifæri til gera einmitt það. ÁFRAM TIL SIGURS Á LAUGADEGI!
(Takk, Sóley!)
Fylgi Framsóknarflokksins tekur stökk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.5.2007 | 18:00
Skattapeninga eytt vel
Af hverju eru þau "að betla", en aðrir eru "götulistamenn"?
Átta rúmenskir harmonikkuleikarar sendir suður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.5.2007 kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
7.5.2007 | 18:23
Íbúalýðræði og heimilisleysi
En ein spurning sem er gleymt hér er, af hverju eru það einu sinni hægt að vera heimilaus á Íslandi? Atvinnuleysi er á 1,3%. Á sama tíma bendir tölur frá 2004 á að það er 40 til 50 sem eru "fullkomlega heimilislausir" (fólk sem býr á götunni) og tæp 100 manns sem eru heimilislausir í einhvern leyti.
Það sýnast mér að það er algjörlega hægt að útrýma heimilisleysi á morgun, ef við vildum að gera það í alvörunni. Eftir hverju var þessi ríkistjórn að bíða?
Bara annað dæmi um hvað það sé mikilvægt að fella þessi ríkistjórn á laugardegi.
PS: Ég hvet ykkur til að horfa á RÚV á kl. 22:25 í kvöld, sem verður flokkakynningin okkar. Um er að ræða 15 mínútna stórskemmtilega og fræðandi kynningu frá okkur, með viðtölum og bara skemmtilegt efni. Ekki missa af því!
Mótmæla staðsetningu á heimili fyrir heimilislausa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.5.2007 | 20:57
Þess vegna er þarft að útrýma launaleyndin
Eins og okkar félagi Gestur Svavarson benti réttlega á:
"Launaleyndin er ekki aðeins gott vopn í höndum launagreiðenda til þess að geta stýrt launamun kynjanna, sem er ein af meinsemdum nútímans og eldri tíma, heldur er launaleyndin einnig til þess fallin að rjúfa samstöðu launafólks, kljúfa launþegahreyfingar og gera lýðræðislegri umræðu erfitt fyrir."
Nákvæmlega. Með því að útrýma launleyndin mun loksins öll spil verður á borðinu, og launamisrétti kynjanna verður hluti af fórtiðinni eins og það á að vera. Laun samkvæmt kjárasamning er ekki trúnaðarmál.
Sýslumaður talinn hafa brotið jafnréttislög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.5.2007 | 07:12
Innflytjendur og kvenfrelsi
Þetta eru athyglisverð rök. Með sömu rökum má segja að það að hafa konur og karlmenn í sama samfélagi gangi heldur ekki upp - við þurfum að glíma við alvarleg samfélagsleg vandamál eins og kynbundið ofbeldi, launamisrétti milli kynjanna, og alls konar fordóma á báða bóga. Eigum við þá að draga þá ályktun að samfélag með báðum kynjum gangi ekki upp?
Auðvitað ekki. Við vitum vel að það er ekki út af því að konur og karlmenn eru öðruvis að vandamál koma upp, heldur út af misskilningum, vanþekkingu og fordómum. Að þessu leyti er margt sambærilegt með innflytjendamálum og jafnréttismálum.
Fyrir hundrað árum voru konur annars flokks í samfélaginu. Þær höfðu ekki sömu réttindi og karlmenn, áttu mjög erfitt með að fá menntun og störf við þeirra hæfi, og litið var á þær sem annaðhvort gæludýr eða vinnuafl á heimilinu, en ekki manneskjur með sömu drauma og þarfir og karlmenn.
Margt hefur breyst síðan þá, þó enn sé mikil vinna framundan. En hvernig tókst okkur að breyta því? Þrennt skiptir mestu máli: fræðsla, umræða og lagasetning. Konur og framsýnir karlmenn byrjuðu fyrst að fræða karlmenn um að þær væru alveg jafn hæfir og karlmenn á flestum sviðum og oft mun hæfari. Þá hófst umræða og samræða milli kvenna og karla um þeirra málefni. Smátt og smátt urðu bæði karlmenn og konur meðvitaðar um staðreyndir málsins, og þá voru sett lög sem endurspeglaði vilja þjóðarinnar. Þannig var hægt að minnka alvarleg samfélagsleg vandamál og fordóma á milli kvenna og karla. Við ættum að beita sömu meðferðum til að koma jafnrétti milli innflytjenda og innfæddra.
Innflytjendur og innfæddir eiga að hafa mörg tækifæri til að ræða saman - í skólanum, í vinnuni, og annars staðar í okkar daglega lífi. Þannig geta innflytjendur lært meira um íslenskt samfélag, og þá geta Íslendingar líka lært meira um þá sem hingað koma. Það þarf að gerast í leikskólum, grunnskólum, menntaskólum, háskólum og í vinnunni. Þá tekst okkur að eyða fordómum og skapa mikilvæga umræðu.
Við þurfum líka lagasetningu sem endurspeglar það sem við höfum lært: að það þarf fræðslu en ekki hræðslu til að koma í veg fyrir að samfélagsleg vandamál verði til og að allir eiga að fá sömu tækifæri í samfélaginu, óháð því hvað við fæddumst.
Við vitum vel að fjölmenning er ekki rót vandamálsins frekar en tvö kyn í sama land er rót allra vandamála í jafnréttismálunum. Innflytjendastefna Vinstri-grænna grundvallast á trúnni á jafnrétti, réttlæti og lýðræði. Það mun auka umræðuna og fræðsluna á milli innflytjenda og Íslendinga í skólum og í vinnunni, tryggja góða kjör allra landsmanna, eyða fordómum og auka samþættingu. En við þurfum ekki biða í hundrað ár eftir breytingar - innflytjendastefnan okkar gerir okkur kleift að ná því markmiði strax í dag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.4.2007 | 19:55
Sjálfsagt
Það er enginn útópía, og verður líklega aldrei til. En við reynum það alltaf að gera samfélagi okkar betra. Að útrýma fátækt er eitt helsta markmið í hvaða land sem er. Og ef það væri til land í heiminum sem getur gert það, það er Ísland. En hvort það sé hægt að útrýma það eða ekki, það skaðar ekkert til að reyna því.
Skemmtið ykkur vel á 1. maí!
Krafan 1. maí að fátækt verði útrýmt á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.4.2007 | 18:05
Starfsfólkið er nú þegar hér
Þess vegna stendur það í innflytjendastefnun VG meðal annars, "Tryggja skal að menntun innflytjenda verði metin og staðfest með formlegum hætti þannig að hún megi nýtast viðkomandi sem og samfélaginu öllu."
Betri laun og hærri skattleysismörk fyrir þá sem vinna í heilbrigðiskerfinu er líka brynt.
Ísland er 6. ríkasti land heimsins - við getum víst gert betur.
Engar innlagnir á sjúkrahúsið á Egilsstöðum - sárvantar fólk til starfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)