Alveg rétt

Húsleitirnar hjá hælisleitendum sem lögreglan tók þátt í er mjög undarlegt fyrirbæri. Hvað eru þessu "rökstuddan grun" að hér væri fólk að reyna að fá dvalarleyfi á fölskum forsendum sem Jóhann R. Benediktsson um er að tala? Það er um ekki að ræða einn eða nokkra manns sem grunaðar voru, heldur allir í húsinu. Hann segir að húsaleitirnar hefur verið "árangursríkar" af því fannst var "mikið af gögnum". Morgunblaðið segir að þetta gögn er "vegabréf, persónuskilríki, reiðufé í ýmsum gjaldmiðli að andvirði rúmlega 1,6 milljóna króna."

Það er ekki "árangur" per se, og enginn eiturlyf fannst þó lögreglan fór inn með fíkniefnahund. Árangurinn var aðeins að taka peninga og persónuskilríki. Nú er það í lagi fyrir lögreglan að taka peninga úr fólki? Þetta fólk má ekki vinna samkvæmt lögin á meðan mál þeirra til meðferðar. Hvernig þá myndi þetta fólk borða, lifa? 

Er það tilviljun að nýlega hefur æ fleiri hælisleitendir fengið athygli í fjölmiðlum, sem skína kastljós á dómsmálaráðherrum Björn Bjarnasson, og nú fékk vinur hans Jóhann "rökstuddan grun" sem hann notar til að ráðast inn á fólki? Það veit ég ekki, en það er ekki gott dæmi um hvernig við forum með fólki sem leita til okkar fyrir aðstoð.

Uppfærsla:  Meira um málið birtast í visir.is í dag:

„Ég var sofandi þegar þeir brutu upp dyrnar. Mér fannst ég bara vera kominn aftur til Afganistans og yrði drepinn," segir Hassam Raza Akbari, hælisleitandi frá Afganistan.

Hann lenti í aðgerð lögreglumanna, sem gerðu húsleit hjá 42 hælisleitendum í Keflavík á fimmtudaginn. Lögreglan tók af þeim peninga og vegabréf, en tilgangurinn mun meðal annars hafa verið að ganga úr skugga um uppruna mannanna.

„Þeir sögðust leita fíkniefna. Ég var á nærfötunum og vildi fara í fötin en þeir sögðu mér að vera ekki með stæla, þá yrði ég settur í handjárn. Þetta var eins og í bíómynd," segir Akbari. Hann muni aldrei gleyma þessu þrátt fyrir ungan aldur, 22 ár.

„Ég er ekki glæpamaður og það er erfitt að útskýra hvernig manni líður við svona aðstæður. Það eina sem ég gat sagt þeim þegar þeir fóru var að þeir væru ekki mennskir, þetta væri rangt."

Akbari segir að lögreglan hafi ekki tekið peninga af sér, því hann hafi ekki átt neina. Hann skilur ekki hvers vegna peningar eru teknir af hælisleitendum. „Þegar við komum hingað tókum við flestir aleiguna með okkur og það eru stundum einhverjir tugir þúsunda," segir hann.

Ali Reza frá Íran segir svipaða sögu. „Þetta var ekki fallegt, þeir niðurlægðu fólkið og handjárnuðu suma, litu á okkur með hatursfullu augnaráði. Þeir tóku af mér 70.000 krónur," segir hann.

Eyjólfur Kristjánsson, hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir aðgerðina árangursríka.

„Við fundum skilríki sem varpa ljósi á sögu þessara einstaklinga. Ég held ég geti fullyrt að einhverjir þeirra hafi stöðu [flóttamanns] í Evrópu," segir hann.

En hvers vegna voru peningar teknir af þeim?

„Það var tekin ákvörðun um að haldleggja peninga svo viðkomandi aðilar geti gert grein fyrir þeim. Þetta fólk kemur hér og gefur sig út fyrir að vera allslaust og er haldið uppi á kostnað ríkisins. Það er auðvitað mjög undarlegt þegar slíkt fólk er með stórar upphæðir undir koddanum sínum," segir Eyjólfur. Flestir fái peninga sína vafalaust aftur.

Aðgerðin hafi verið nauðsynleg því við „verðum að vita hvaða fólk við erum með og hvaða fólki við erum að hleypa út á göturnar."


"Við verðum að vita hvaða fólk við erum með og hvaða fólki við erum að hleypa út á göturnar" ...

Ég skal segja ykkur sögu frá mín eigin líf. 

Ég bjó einu sinni í Hafnarfirði, í húsnæði sem var fullt af útlendingum - það var fólk frá Kína, Peru, Póllandi, og ég, frá Bandaríkjunum. Það kom einn dag lögreglan, sem bankaði á hurðinni, og baðu okkar að sýna þeim vegabréf og skilríki. Aðgerðin fór fram kurteislega og án nokkra vandamál, ef ég man rétt. Mín reynslu varðandi lögreglan hefur alltaf verið jákvæð.

En að ráðast inn með hundum í miðjum nóttina, að reyna að hræða fólki, og taka peninga og skilríki frá fólki?  Var allt þetta nauðsynlegt?


mbl.is Hælisleitendur mótmæla aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fréttir fjölmiðla af þessum atburði eru ekkert nema endursögn af yfirlýsingum lögreglunnar. Og áhugaleysi manna um þessa ruddalegu aðgerð er ógnvekjandi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.9.2008 kl. 20:23

2 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

því miður þá virðast aðfarir lögreglu vera til þess fallnar að auka á fordóma gagnvart þessum hópi og gera kjör þeirra krappari en verið hefur.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 12.9.2008 kl. 20:42

3 Smámynd: Paul Nikolov

Takk, Vilmundur. Kannski verð ég að útskyra betur um hvað ég er að ræða hér. Við erum að ræða hér um aðgerð sem lögreglan tók þátt í, þar sem allir í fjölbýlishús var grunaðar um glæp. Ekki einn mann eða nokkra manns, allir. Og síðan var peninga tók frá fólki - og samkvæmt mbl "reiðufé í ýmsum gjaldmiðli" - þ.e.a.s. ekki bara krónur, heldur líka peninga sem maður kom til landsins með. Það finnst mér ekki í lagi, og mér finnst það eðlilegt að spyrja af hverju voru allir í húsinu grunaðar, um hvað, og af hverju það var nauðsynlegt að koma svo ruddalega fram.

Það er líka misskilningur að það er hælisleitandar að streyma til landsins - það er það ekki, og okkar lög vernda landið gegn þá sem koma hingað undir fölskum forsendum. En það er hlutverk UTL til að kanna hver er hér í góðum trú, og hver ekki - að lögreglan tók þetta skref er truflandi.

Paul Nikolov, 12.9.2008 kl. 23:47

4 Smámynd: Paul Nikolov

Lögreglan á Íslandi er yfirleitt til mikillar fyrirmyndar - líka Jóhann R Benediktsson.

Um það er ég sammála. 

Paul Nikolov, 13.9.2008 kl. 10:20

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þessu er ég algjörlega ósammála með Jóhann R. Benediktsson sem ég held að sé einhver viðsjárverðasti maður landsins.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.9.2008 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband