26.8.2008 | 15:59
"Ég er kominn heim"
Ég er hæstaánægður að sjá Paul Ramses kominn aftur til Íslands. Eins og ég hef áður sagt, það er ekki óvenjulegt að taka tillits til kringumstæður mannsins sem sækir um hæli hér á landinu, og stjórnvöldin hefur valdin til að láta maður eins og Paul Ramses dvelja hér. Í raun er það í samræmi við 46. gr. Lög um útlendinga nr. 96/2002. Vonandi verður íslensku stjórnvöldin sammála og veita honum dvalarö og atvinnuleyfi.
En við skulum ekki gleyma heldur að það er afar mikilvægt að koma í veg fyrir slíkt meðferð sem Ramses þurfti að þola. Það var breytingatillögur sem við Vinstri-Grænn lagt fram í vor, þar sem stendur meðal annars:
,,Við 26. gr. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Leiti útlendingur úrslausnar dómstóla um brottfall dvalarréttar er honum heimil dvöl í landinu á meðan málið er til meðferðar hjá dómstólum.
Við 28. gr. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Leiti útlendingur úrslausnar dómstóla um brottvísun er honum heimil dvöl í landinu á meðan málið er til meðferðar hjá dómstólum."
Því miður taldi meirihlutinn á allsherjanefnd þessari breytingar ekki nauðsynlegir þá. Vonandi verður skipti um skoðun núna. Við skulum ekki endurtaka mál eins og meðferð hans Paul Ramses aftur.
![]() |
Grátið af gleði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sjaldan upplifi ég það að vera sammála Vinstri Grænum. En í þessu tilfelli er ég það svo sannarlega.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 16:31
Tek undir með Helga Hrafni.
Jóhannes H. Proppé (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 19:03
Fyrst af øllu vil eg taka that fram ad eg hef ekkert å moti P. Ramses og hans fjølskyldu og thau mega bua å Islandi til æviloka min vegna. Thetta segi eg medal annars til ad hindra ad folk spili ut rasistakortinu gegn mer. En, eg verd ad spyrja.... Skiptir thad virkilega engu måli ad bædi hann og kona hans hafi verid oløgleg i landinu? Eda su stadreynd ad thad seu allar likur å ad hann og fjølskyldan seu ekki i neinni hættu i Kenya, kannski thvert å moti, nu thegar stjornmålamadurinn sem Ramses studdi er ordinn forsætisrådherra landsins? Er allt i lagi ad hælisleitendum se groflega mismunad? Er allt i lagi ad løg og reglur seu thverbrotin og ad starfsfolk Utlendingastofnunnar se åsakad um mistøk i starfi af thvi ad thad for eftir thessum sømu løgum og reglum?
Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 08:39
Kæri Þórarinn
Það er ekkert rasíst með því að spyrja eðlileg spurningar, kvíddu engu.
Auðvitað skiptir það máli hvort einhvern er á landinu löglega eða ólöglega. En það stendur í lög að fólk frá utan ESB sem vill koma til Íslands þarf að vera með starf og lögheimili áður en það kemur hingað. Það er nú varla hægt fyrir flóttamönnum, sem er oft að flýja frá hræðalegum ástæðum í heimalöndum sínum. Og eins og ég hef benti á, Ramses á rétt til að vera hér samkvæmt 46. gr. Lög um útlendinga nr. 96/2002. Ég get ekki talað um málið hennar Rosemarys, en samkvæmt Paul Ramses var hann að óttast fyrir líf sitt. Í öðru lagi, ef stjórnumálamaðurinn sem Ramses studdi er orðinn forsætisráðherra skiptir kannski litlu máli - það er auðvelt að sjá í öðrum löndum að stjórnafl geta verið ennþá mjög hættulegt fólk þó það er ekki lengur í valdi (sjá t.d. Kambódíu, 1979-1989). Hvort Ramses er ennþá í hættu er eitthvað sem dómsmálaráðuneytið þarf að kanna.
En ég er sannarlega sammála þér að flóttamenn er mismunað. Ramses er eitt dæmi af mörgum sem nær litlu eða enginn athygli. Þess vegna tel ég að okkar vantar breytingar í okkar flóttamannalög, eins og við VG og UNHCR lagt fram í vor.
Ég þakka þér fyrir að koma fram með þessari spurningar.
Paul Nikolov, 28.8.2008 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.