5.10.2007 | 12:14
Alveg rétt
Ég man eftir því þegar talað var um "litháensk mafíu" sem var að smygla dóp inn í landinu. Staðreyndir voru annað mál: samkvæmt tölur frá Keflavíkarflugvelli, af þeim 32 handteknir á Keflavík fyrir smyglun á milli janúar og águst 2006, Íslendingar voru meirihlutinn, og á meðal útlendingar voru Danir og Frakkar á toppinum. Aðeins 5 Litháar voru handteknir fyrir smyglun, sem er greinalega meiri en nóg sönnun til að tala um "litháensk mafíu". Ég er auðvitað ekki að segja að Íslendingar séu smyglarar - vil aðeins að benda á að hvað sönnun sé getur verið mjög misjafn.
Staðreynd er sú að það verður því miður alltaf fólk sem á engin traust á austur-Evrópabúum. En það besta vöpn gegn fordoma eru upplýsingar, umræða og fræðsla. Þess vegna er það gott þegar fólk eins og Einar talar um málið.
![]() |
Erfiðara fyrir Litháa að leigja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.9.2007 | 22:42
En hvað með það að koma í veg?
![]() |
Ákveðið að hefja herferð gegn ólöglegri starfsemi fyrirtækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.9.2007 kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.9.2007 | 20:51
Æðislegt
![]() |
Guðfríður Lilja framkvæmdarstýra þingflokks VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2007 | 14:08
Að byrgja brunninn
Í fyrsta lagi þarf að afhenda einstaklingum atvinnuleyfi, en ekki atvinnurekendum eins og nú er. Einstaklingurinn er þannig bundinn til að vinna aðeins á þennan stað, eða sækja aftur um ef hann vill vinna annars staðar. Svona umsóknarferli er bæði ósveigjanlegt og erfitt fyrir umsækjendur. Eigum við ekki frekar að veita erlendum starfsmönnum frelsi til að vinna þar sem þeirra er þörf og þar sem þeir vilja sjálfir starfa? Atvinnurekendur sem fara illa með starfsfólk sitt eiga þá á hættu að missa starfskrafta, en hinir sem virða réttindi þess ættu auðveldara með að fá til sín gott starfsfólk. Þar fyrir utan myndi þetta fyrirkomulag gera atvinnumarkaðinn sveigjanlegri og þannig bæta efnahag þjóðarinnar.
Í öðru lagi vantar mikið upp á að þeir sem hingað koma fái fræðslu um atvinnuréttindi sín. ASÍ hefur nú þegar þýtt atvinnuréttindi erlendra starfsmanna yfir á tæp 20 tungumál. Þegar einstaklingur sækir um atvinnuleyfi hér á landi er bráðnauðsynlegt að hann fái þessar upplýsingar á móðurmáli sínu. Það er líka brýnt að kjarasamningur hans sé þýddur. Þannig mætti koma í veg fyrir að brotið sé á ýmsum réttindum erlendra starfsmanna, t.d. með því að bjóða þeim lægri laun en Íslendingum í sömu störfum.
Í þriðja og síðasta lagi er ekki nóg að efla eftirlit með atvinnurekendum. Það þarf líka að refsa þeim sem brjóta lögin, jafnvel með því að loka fyrirtækjunum ef brotin eru mjög alvarleg. Sérstaklega þarf að skoða fyrirtæki sem nota starfsmannaleigur sem eru alræmdar fyrir mannréttindabrot til að ná í erlent starfsfólk. Þess vegna sagði ég í vor að það væri skynsamlegra að opna Ísland fyrir Búlgörum og Rúmenum, sem nú hafa fengið aðild að ESB, en að fá þá hingað í gegnum þjónustusamninga og starfsmannaleigur. Félagsmálaráðherra var á öðru máli í vor, og við heyrum nú árangurinn af þeirri stefnu í fjölmiðlum.
Þetta eru nokkrar hugmyndir um það hvernig hægt er að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í hvernig hægt er að koma í veg fyrir réttindabrot í stað þess að bíða þess að þau verði að fjölmiðlamáli.
![]() |
Ögmundur Jónasson: Full ástæða til að athuga hvort réttindi sjúkrahússtarfsmanna séu virt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.8.2007 | 14:53
Kominn heim
Ég er kominn aftur til landsins eftir 7-vikur frí í Búlgaríu, þar sem kona mín er frá. Búlgaría er yndisegt land, og það var mjög gott að gleyma að netið sé til og slaka bara af á ströndinni. Samt, eftir næstum því 8 ára á Íslandi, 35-40 stig er aðeins of mikið fyrir mig. Get ekki einu sinni man eftir því þegar það var bara "venjulegt sumar" hjá mér, þegar ég bjó í Baltimore. Kannski er ég loksins að byrja að aðlagast?
Jæja, ætla að skrifa bráðum aftur um innflytjendamál, og kannski sýna ykkur nokkra myndir frá Búlgaríu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)